Fréttir


  • Heyklif

10.11.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna Heyklifs á Kambanesi

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. nóvember 2020, breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 sem samþykkt var í bæjarstjórn 28. maí 2020.

Í breytingunni felst að 132 ha landbúnaðarsvæði í landi Heyklifs á Kambanesi er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu (V2) þar sem gert er ráð fyrir hótel- og veitingarekstri. Einnig er afmarkað vatnsból, brunn- og grannsvæði, í landi Hvalness, vegna ferðaþjónustunnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.