Fréttir


6.7.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Djúpavogshrepps, athafnasvæði við Innri Gleðivík, Múlaþingi

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. júlí 2021, breytingu á Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn Múlaþings 9. júní 2021.

Í breytingunni felst stækkun athafnasvæðis við Háukletta í Innri Gleðivík, Djúpavogi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.