Fréttir


6.7.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Fljótsdalshéraðs vegna miðbæjar Egilsstaða

Skipulagsstofnun staðfesti 6. júlí 2023 breytingu á Aðalskipulagi fyrrum Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. júní 2023.

Í breytingunni felst breyting á skilmálum miðsvæðis (M1) í miðbæ Egilsstaða með heimildum fyrir byggingarmagni allt að 100.000 m2 og allt að 180 íbúðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.