Fréttir


25.9.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna aukinna byggingarheimilda í íbúðarbyggð ÍB-602, Hofsósi

Skipulagsstofnun staðfesti, 22. september 2023, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í byggðaráði 31. júlí 2023.

Í breytingunni felst fjölgun íbúða innan íbúðarbyggðar ÍB-602 á Hofsósi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.