Fréttir


  • Brekkuás, Garðabæ

27.9.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Brekkuáss

Skipulagsstofnun staðfesti, 23. september 2021, breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 2. september 2021.

Í breytingunni felst að landnotkun á reit 2.06, Brekkuás í Ásahverfi, er breytt úr samfélagsþjónustu (S) í íbúðasvæði (Íb).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.