Fréttir


7.5.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur vegna Verbrautar 1

Skipulagsstofnun staðfesti 6. maí 2019 breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 26. mars 2019.

Í breytingunni felst að 0,2 ha af svæði S16, þjónustustofnanir, er breytt í hafnarsvæði sem stækkar þá sem því nemur. Um er að ræða lóðina Verbúð 1.

Málsmeðferð var óveruleg breyting samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi m eð birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.