Fréttir


16.9.2016

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar, Skarðshlíð

Skipulagsstofnun staðfesti þann 25. ágúst 2016 breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem samþykkt var í bæjarráði 11. ágúst 2016.

Í breytingunni felst að 1 ha af svæði S 33, samfélagsþjónusta í Skarðshlíð, sameinast  íbúðarsvæðinu ÍB 10, sem verður 25 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar .