Fréttir


31.5.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps vegna landnotkunar að Sveinsstöðum og á Húnavöllum

Skipulagsstofnun staðfesti þann 24. maí 2018, breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. október 2017.

Í breytingunni felst að efnistökusvæðum er fjölgað og nýtt verslunar- og þjónustusvæði og svæði fyrir frístundabyggð er afmarkað í landi Sveinsstaða. Þá er nýtt athafnasvæði afmarkað á Húnavöllum þar sem þéttbýlismörkum er jafnframt breytt.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.