Fréttir


17.8.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hveragerðisbæjar vegna leikskólans Óskalands

Skipulagsstofnun staðfesti 15. ágúst 2023, breytingu á Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2017-2029 sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. júlí 2023.

Í breytingunni felst stækkun landnotkunarreits samfélagsþjónustu (S2) við leikskólann Óskaland í Hveragerði yfir aðliggjandi opið svæði (OS) sem fellur út. Stækkunin nemur 0,3 ha, úr 0,7 í 1,0 ha vegna áforma um stækkun leikskólans og fjölgun leikskóladeilda.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.