Fréttir


  • Hvammur, Kaldrananeshreppur

20.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Kaldrananeshrepps vegna frístundabyggðar og verslunar- og þjónustusvæðis í landi Hvamms

Skipulagsstofnun staðfesti 20. apríl 2022 breytingu á Aðalskipulagi Kaldrananeshrepps 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. september 2021.

Í breytingunni felst að um 9,5 ha landbúnaðarsvæði í landi Hvamms er skilgreint sem frístundabyggð (FS12) fyrir fimm frístundahús og verslunar- og þjónustusvæði (VÞ8) vegna áforma um gistiþjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.