Fréttir


  • Húsavík

22.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Norðurþings, svæði fyrir þjónustustofnanir Þ1, hjúkrunarheimili á Húsavík

Skipulagsstofnun staðfesti 21. desember 2020 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010 – 2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. desember 2020.

Í breytingunni felst að svæði fyrir þjónustustofnanir (Þ1) stækkar um 0,2 ha á kostnað opins svæðis og íbúðarbyggðar vegna stækkunar hjúkrunarheimilis.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.