Fréttir


20.5.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Eyvindarholts-Langhólma

Skipulagsstofnun staðfesti 20. maí 2022 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. desember 2021.

Í breytingunni felst að svæði fyrir frístundabyggð, Eyvindarholt-Langhólmi (F-369), er minnkað úr 36,2 ha í 9,9 ha og lóðum fækkað úr 14 í 10. Landbúnaðarsvæði stækkar sem þessu nemur.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.