Fréttir


3.5.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra, Leirubakki

Skipulagsstofnun staðfesti þann 2. maí 2018 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. febrúar 2018.

Í breytingunni felst að tveimur lóðum úr frístundabyggðinni F39 Stóri Klofi/Leirubakki, samtals um 13 ha að stærð, er breytt í landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi.