Fréttir


23.8.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna fjölgunar gistirúma í landi Uxahryggjar 1

Skipulagsstofnun staðfesti 23. ágúst 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. febrúar 2023.

Í breytingunni felst að heimilt verður að fjölga gistirúmum úr 15 í 50 á svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ6 í landi Uxahryggjar 1.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.