Fréttir


  • Þjóðólfshagi

17.3.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Þjóðólfshaga

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. mars 2022, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþing ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. október 2021.

Í breytingunni felst að íbúðarbyggðin ÍB31 í Þjóðólfshaga stækkar um 3 ha og frístundabyggðin F11 minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.