Fréttir


18.9.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna efnistökusvæðis E27 við Karlseyjarveg

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. september 2023, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034, sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. júní 2023.

Í breytingunni felst að mörkuð er stefna um nýtt efnistökusvæði E27 á Reykhólum austan Karlseyjarvegar. Hámarkvinnslumagn er 22.000 m3 á 1 ha.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.