Fréttir


  • Sandgerði, leikskóli

22.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sandgerðisbæjar vegna þjónustustofnunar við Byggðaveg

Skipulagsstofnun staðfesti, 21. desember 2020, breytingu á Aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 2008-2024 sem samþykkt var í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar 7. október 2020. Í breytingunni felst að einn ha af opnu svæði til sérstakra nota norðan Byggðavegar er breytt í svæði fyrir þjónustustofnanir þar sem fyrirhugað er að byggja leikskóla.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.