Fréttir


  • Langeyri

16.9.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Súðavíkurhrepps vegna breyttrar landnotkunar innan Langeyrar, við Ákabúð og í Eyrardal

Skipulagsstofnun staðfesti, 16. september 2022, breytingu á Aðalskipulagi Súðavíkurhrepps 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. ágúst 2022.

Í breytingunni felst stækkun iðnaðarsvæðis innan við Langeyri, breyting á svæði fyrir þjónustustofnanir við Ákabúð í íbúðarbyggð og breyting á mörkum verslunar- og þjónustusvæðis og íbúðarbyggðar í Eyrardal.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.