Fréttir


  • Árborg

7.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar, íbúðarbyggð í landi Bjarkar og Jórvíkur og afmörkun þéttbýlis

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. desember 2020, breytingu á Sveitarfélagsins Árborgar 2010 – 2030 vegna lands Bjarkar og Jórvíkur, sem samþykkt var í bæjarstjórn 18. mars 2020.

Í breytingunni felst að landbúnaðarsvæði í landi Bjarkar og Jórvíkur er breytt í íbúðarbyggð og þéttbýlið Selfoss stækkar sem því nemur til suðurs.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.