Fréttir


  • Austurbyggð, Selfossi

24.8.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar vegna Austurbyggðar 2, Selfossi

Skipulagsstofnun staðfesti, 11. ágúst 2021 breytingu á Aðalskipulagi Árborgar 2010-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 28. apríl 2021.

Í breytingunni felst að Austurbyggð 2, íbúðarbyggð á Selfossi (N13), er stækkuð um 5,8 ha og minnkar opið svæði til sérstakra nota, hesthúsasvæði (Ú11), sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.