Fréttir


12.12.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna Reynivalla II

Skipulagsstofnun staðfesti 12. desember 2022 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. október 2022.

Í breytingunni felst að gistirýmum á verslunar- og þjónustusvæði VÞ45 í landi Reynivalla II er fjölgað úr 100 í 150 og gestum fjölgar úr allt að 200 í allt að 300.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.