Fréttir


  • Gljufurarholt

3.3.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Gljúfurárholts

Skipulagsstofnun staðfesti, 27. febrúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. janúar 2020.

Í breytingunni felst að frístundabyggð F11 (15 ha) er felld niður og þess í stað er skilgreint svæði fyrir þjónustustofnanir á 2 ha lands (S9) og landbúnaðarland þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu á þremur landspildum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.