Fréttir


27.9.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Hellu- og Holtagljúfurs Í9

Skipulagsstofnun staðfesti 24. september 2021 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 sem samþykkt var í bæjarstjórn 24. júní 2021.

Í breytingunni felst að heimilt verður að byggja allt að 60 íbúðir á reit Í9 í Hellu- og Holtagljúfri í stað allt að 40 íbúða.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.