Fréttir


7.11.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Árborgar vegna Eyravegar 34-38

Skipulagsstofnun staðfesti, 2. nóvember 2018, breytingu á Aðalskipulagi Árborgar 2010-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 19. september 2018.

Í breytingunni felst að landnotkun á lóðunum Eyravegi 34-38 er breytt þannig að heimilt verður að hafa íbúðir á viðkomandi lóðum.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.