Liðnir viðburðir

Rými fyrir mannlíf og samtal – Skipulags- og umhverfismatsdagurinn 2020

Vefráðstefna, 13. nóvember

  • 13.11.2020

Skipulags- og umhverfismatsdagurinn 2020 – vettvangur umræðu um skipulagsmál.

Vefráðstefna, 13. nóvember kl. 09:00–16:30

Tveir árvissir viðburðir á vegum Skipulagsstofnunar, Skipulagsdagurinn og Umhverfismatsdagurinn, verða að þessu sinni sameinaðir í einn vegna COVID-19 faraldursins. Viðburðurinn er líkt og fyrri ár haldinn í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Að þessu sinni verður viðburðurinn aðeins haldinn með rafrænum hætti og verður honum streymt á vefnum. Ekki er þörf á að skrá sig til að fylgjast með streyminu.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Rými fyrir mannlíf og samtal. Er þar annars vegar vísað til hins eiginlega umhverfis, bæði hins byggða og náttúrulega, sem mótar umgjörð um okkar daglega líf. Hins vegar er vísað til rýmisins sem við höfum búið okkur til í tíma og rúmi fyrir samtal um mótun byggðar og umhverfis. Síðarnefnda rýmið er í auknum mæli að finna í rafheimum og má segja að það sé táknrænt fyrir umfjöllunarefnið í ár að ráðstefnan verður alfarið haldin á vefnum vegna COVID-19 faraldursins. Ennfremur er rafheimurinn í vaxandi mæli rými fyrir ýmsar athafnir daglegs lífs, eins og vinnu og verslun.

Tuttugu mínútna bærinn

Dagskrá Skipulags- og umhverfismatsdagsins er fjölbreytt og efnismikil. Í fyrri hluta hennar verður skipulagshugmyndin um 20 mínútna bæinn rædd frá ýmsum sjónarhornum. Vikið verður að erlendum og innlendum dæmum um skipulag í anda hugmyndarinnar. Auk þess verður sjónum beint að þeim ávinningi sem nálgunin getur haft fyrir bæði daglegt líf íbúa og viðamikil samfélagsleg úrlausnarefni á borð við loftslagsvandann og lífsstílstengda sjúkdóma. Meðal frummælenda eru Guro Voss Gabrielsen frá Kommunal- og moderniseringsdepartementet (KMD) í Noregi og Robert Huxford frá Urban Design Group í Bretlandi, sem hafa mörgu að miðla af langri reynslu við skipulag og hönnun bæjar- og göturýma.

Stafrænar lausnir og nýjungar við samráð

Í síðari hluta ráðstefnunnar verður leitað svara við þeirri spurningu hvernig bæta má skipulag og umhverfismat með nýjum aðferðum við kynningu og samráð. Einkum verður fjallað um hvernig má aðlaga hefðbundnar samráðsaðferðir að stafrænum lausnum og hagnýta tækninýjungar og þróun í rafrænum samskiptum og miðlun í þágu betra og markvissara samráðs.

Dagskráin hefst með ávarpi ráðherra skipulagsmála, Guðmundar Inga Guðbrandssonar og í kjölfar þess fer Ásdís Hlökk Theodórsdóttir forstjóri Skipulagsstofnunar yfir það sem efst er á baugi í starfsemi stofnunarinnar og á vettvangi skipulagsgerðar og umhverfismats. Erindin sem fylgja eru mörg og fjölbreytt, en auk erlendu gestanna sem nefndir voru að ofan flytja erindi Ólöf Örvarsdóttir frá Reykjavíkurborg, Óskar Örn Gunnarsson frá Landmótun, Matthildur Kr. Elmarsdóttir frá Alta, Helena Guttormsdóttir frá Landbúnaðarháskóla Íslands, Guðmundur Kristján Jónsson frá Planitor, Orri Steinarsson frá jvantspijker & partners, Hrafnkell Proppé frá Verkefnastofu Borgarlínu, Elín S. Óladóttir frá Landsneti, Róbert Ragnarsson frá RR ráðgjöf, auk Hrafnhildar Bragadóttur, Ólafs Árnasonar og Esterar Önnu Ármannsdóttur frá Skipulagsstofnun. Guðjón Bragason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga slær síðan botninn í dagskrána með erindi um verkefnin sem framundan eru í skipulagsmálum sveitarfélaga.

Fundarstjóri er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari, sem er jafnframt meðal frummælenda og mun hann í erindi sínu fara yfir málefni fjórðu iðnbyltingarinnar og hvort við séum að undirgangast breytingar sambærilegar við þær þegar fólk fluttist úr sveitum yfir í borgir.

Dagskrá á pdf.

 Dagskrá:

 9.00

Setning ráðstefnu

 

Ávarp umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundar Inga Guðbrandssonar 
Upptaka

Hvað er að ske? Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar
Upptaka - Glærur

 9.40

TUTTUGU MÍNÚTNA BÆRINN

  Local planning for global goals – a Nordic approach
Guro Voss Gabrielsen, Kommunal- og moderniseringsdepartementet, Noregi
Upptaka - Glærur

Street
design: past, present, future
Robert Huxford, Urban Design Group, Bretlandi
Upptaka - Glærur

Í næsta nágrenni 20 mínútna bærinn í landsskipulagsstefnu
Hrafnhildur Bragadóttir, Skipulagsstofnun
Upptaka - Glærur

Meiri borg – betri borgarblær
Ólöf Örvarsdóttir, Reykjavíkurborg
Upptaka - Glærur

Hvolsvöllur – 20 mínútna bærinn
Óskar Örn Gunnarsson, Landmótun
Upptaka - Glærur

Gönguvænn Grundarfjörður – greining, skipulag, framkvæmd
Matthildur Kr. Elmarsdóttir, Alta
Upptaka - Glærur

Hagur af norrænu samstarfi fyrir litla og meðalstóra bæi

Helena Guttormsdóttir, Landbúnaðarháskóli Íslands
Upptaka - Glærur

 12.00

Hádegishlé

 13.00 Borg-í-ský

Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari
Upptaka

 13.30

BETRA SKIPULAG OG UMHVERFISMAT MEРSTAFRÆNNI ÞRÓUN OG SAMRÁÐI

   Framtíðin í gögnum og aðgengi

Ólafur Árnason, Skipulagsstofnun
Upptaka - Glærur

Aukin yfirsýn – öflugri miðlun
Guðmundur Kristján Jónsson, Planitor
Upptaka - Glærur 

Borgarlínan – samtal um hið óorðna
Hrafnkell Proppé, Verkefnastofa Borgarlínu
Upptaka - Glærur

Mikilvægi samráðs
Elín Sigríður Óladóttir, Landsneti
Upptaka - Glærur

 

     Kaffihlé

  Taktu þátt! Stafrænt samráð á kortum

Ester Anna Ármannsdóttir, Skipulagsstofnun
Upptaka - Glærur

Stafrænt samráð og snarteikningar við sameiningu sveitarfélaga
Róbert Ragnarsson, RR ráðgjöf
Upptaka - Glærur

 15.50

Verkefnin framundan

  Sýn Sambands íslenskra sveitarfélaga

Guðjón Bragason, Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Upptaka - Glærur

 16.30

Ráðstefnuslit