Liðnir viðburðir

Skipulagsdagurinn 2021

Skipulag fyrir nýja tíma

  • 12.11.2021

Salnum, Kópavogi.

Framtíðin verður í fyrirrúmi á Skipulagsdeginum, árlegri ráðstefnu Skipulagsstofnunar um skipulagsmál og þróun þeirra. Yfirskriftin er Skipulag fyrir nýja tíma – og verður sjónum beint sérstaklega að þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir með tilliti til lífsgæða, samgöngumiðaðs skipulags, sjálfbærni í byggðu umhverfi og aðlögunar vegna loftslagsbreytinga og náttúruvár. Ráðstefnan er að vanda haldin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. 

 

Deginum verður skipt í þrjú meginþemu, en við byrjum daginn á hugleiðingu Sverris Norland rithöfundar sem nýlega gaf út bókina Stríð og klið, þar sem hann veltir fyrir sér nútímanum út frá loftslagsmálum og tæknibreytingum. Síðan taka við erindi um Aðlaðandi og sjálfbæra byggð þar sem fjallað verður um leiðir til að skipuleggja okkar byggða umhverfi með þarfir fólks í huga, þar sem gæði húsnæðis, fagurfræði, aðgengi að greiðum samgöngum og nálægð við græn svæði verða ofarlega á baugi. Meðal frummælenda verður Ruth Reichstein, ráðgjafi á skrifstofu forseta Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem mun segja frá New European Bauhaus, sem er átak sem ESB hleypti af stokkunum árið 2020 um hið byggða umhverfi út frá fagurfræði, nýsköpun, tækni og umhverfismálum. Við taka síðan framlög sem setja áherslur New European Bauhaus í íslenskt samhengi beint og óbeint. Meðal annars verða kynnt nokkur skipulagsverkefni úr ólíkum aðstæðum og stöðum á landinu þar sem unnið hefur verið á eftirtektarverðan hátt með sjálfbærni, fagurfræði og notagildi.

Eftir hádegi verður athyglinni fyrst beint að Skipulagi og aðlögun fyrir breytta tíma og litið til þeirra miklu áskorana sem við stöndum frammi fyrir við aðlögun byggðar og samfélags vegna afleiðinga loftslagsbreytinga. Í framlögum frá Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og nokkrum sveitarfélögum verður rætt um hvernig við getum best séð fyrir og unnið út frá þeim áskorunum sem umhverfisbreytingar og náttúruvá fela í sér fyrir skipulagsgerð og sagt frá skipulagsverkefnum frá ólíkum stöðum á landinu. 

Dagskránni eftir hádegi lýkur síðan með pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Skipulag fyrir nýja öld, þar sem rætt verður vítt og breitt um skipulagskerfið og framkvæmd skipulagsmála út frá viðfangsefnum og áskorunum okkar samtíma og framtíðar. Kveikjan er meðal annars að í ár eru 100 ár liðin frá setningu fyrstu skipulagslaganna og þannig má segja að upp sé að renna ný skipulagsöld.

Fundarstjóri er Hrafnkell Proppé.  

Skráning á viðburðinn fer fram hér

Tekið verður við spurningum gegnum sli.do undir myllumerkinu #skipulag.

Boðið verður upp á hádegisverð og kaffiveitingar. Streymt verður af viðburðinum á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar. Ekki er þörf á að skrá sig í streymi. 

Við biðjum gesti um að hafa grímuna meðferðis, en grímuskylda verður í salnum. Gestir eru jafnframt hvattir til að taka hrað- eða heimapróf áður en komið er í Salinn og gæta almennt að persónulegum sóttvörnum. 

Gestir eru hvattir til að mæta tímanlega og nýta sér vistvæna ferðamáta. 

Dagskrá

 9.00

Fylgt úr hlaði

  Umhverfi okkar og ímyndunaraflið
Sverrir Norland, rithöfundur

  Ávarp forstjóra Skipulagsstofnunar, Ásdísar Hlakkar Theodórsdóttur
  Ávarp formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, Aldísar Hafsteinsdóttur Glærur

 10.00

Aðlaðandi og sjálfbær byggð

  New European Bauhaus
Ruth Reichstein, ráðgjafi á skrifstofu forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
Glærur  Upptaka

 

Stutt kaffihlé

  Áherslur New European Bauhaus í íslensku samhengi
Hildigunnur Sverrisdóttir, Listaháskóla Íslands  Glærur  Upptaka
  Vistvænn og grænn nýi Skerjafjörður
Rebekka Guðmundsdóttir, Reykjavíkurborg Glærur  Upptaka
  Deiliskipulagstillaga, Ráðhústorg og umhverfi, Hafnarfirði – Reitur 1
Þorsteinn Helgason, ASK arkitektum Glærur  Upptaka
  Byggt inn í náttúru í Hveragerði
Þráinn Hauksson, Landslagi Glærur  Upptaka
  Stígar í vetrarborg
Anna Kristín Guðmundsdóttir, Teiknistofu Norðurlands Glærur  Upptaka
  Borgarskipulag og samgönguvenjur á Höfuðborgarsvæðinu
Harpa Stefánsdóttir, Norska lífvísindaháskólanum (NMBU) Glærur  Upptaka

 12.00

Hádegishlé

 13.15

 Skipulag og aðlögun fyrir breytta tíma

  Aðlögun og loftslagsþjónusta á Íslandi
Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar, Veðurstofu Íslands
Glærur Upptaka
  Skipulag og aðlögun: að búa okkur undir það sem við vitum – og vitum ekki – um framtíðina
Birna Björk Árnadóttir, Skipulagsstofnun Glærur Upptaka
  Áskoranir skipulagsyfirvalda  hopun jökla
Brynja Dögg Ingólfsdóttir, Sveitarfélaginu Hornafirði Glærur  Upptaka
  Þegar allt gerist í einu - Skipulagsáskoranir í kjölfar náttúruhamfara
Stefán Bogi Sveinsson, Múlaþingi Glærur  Upptaka
  Grænn og heilsuvænn Grundarfjörður
Björg Ágústsdóttir, Grundarfjarðarbæ Glærur  Upptaka

 14.45

Kaffihlé

 15.00

 Skipulag fyrir nýja öld

  Panelumræður
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Skipulagsstofnun
Björn Axelsson, Reykjavíkurborg
Guðjón Bragason, Sambandi Íslenskra sveitarfélaga
Jón Björn Hákonarson, Fjarðabyggð
Ólafur Þór Ólafsson, Tálknafjarðarhreppi

 16.00

Ráðstefnuslit, léttar veitingar