Árangursríkt og skilvirkt umhverfismat
Umhverfismatsdagurinn 2021
Umhverfismatsdagurinn, árlegt málþing Skipulagsstofnunar um umhverfismat, fer fram á Nauthóli miðvikudaginn 1. september næstkomandi kl. 13.00-16.30. Vegna samkomutakmarkana er ekki tekið við skráningum gesta í sal en streymt verður af viðburðinum á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar. Í ár verður Umhverfismatsdagurinn tileinkaður nýjum lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana sem taka gildi þennan sama dag. Yfirskrift dagsins er Árangursríkt og skilvirkt umhverfismat með vísan í áherslu laganna á einföldun á ferli umhverfismats, skilvirkni og samráð.
Lögin fela í sér heildarendurskoðun og sameiningu laga um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og laga um umhverfismat áætlana. Farið verður yfir inntak nýju laganna í megindráttum, þýðingu þeirra og helstu nýmæli og sagt frá vinnu við mótun nýrrar reglugerðar um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Einnig verður fjallað um hlutverk skipulagsgáttar, landfræðilegrar gagna- og samráðsgáttar sem Skipulagsstofnun vinnur nú að því að koma á fót, en í henni ber að birta öll gögn, ákvarðanir og umsagnir vegna umhverfismats framkvæmda og áætlana og leyfa til framkvæmda. Greint verður frá reynslu Finna af forsamráði en ákvæði í finnskum lögum er fyrirmynd forsamráðs í nýju lögunum. Loks verða kynntar niðurstöður rannsóknar á afstöðu almennings og mati fagaðila á samráði í skipulags- og framkvæmdamálum. Í lok dagskrár fara fram panelumræður þar sem rætt verður um ólík sjónarhorn á skilvirkni og árangur umhverfismats auk tækifæra með nýrri löggjöf.
Fundarstjóri er Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur.
Glærur fyrirlesara og upptökur af erindum má nálgast hér að neðan.
Dagskrá
13.00-14.20 |
Fylgt úr hlaði
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar Upptaka |
Lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana – helstu breytingar og áherslur
Egill Þórarinsson, sviðsstjóri hjá Skipulagsstofnun Upptaka Glærur |
Ný reglugerð um umhverfismat framkvæmda og áætlana – nálgun og helstu breytingar
Magnús Dige Baldursson, lögfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu Upptaka Glærur |
Nýsköpun og þróun á sviði umhverfismats – verklag við afgreiðslu mála og undirbúningur stafrænnar gáttar
Ólafur Árnason, forstöðumaður nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun Upptaka Glærur |
Kaffihlé |
14.50-16.30 |
Prior consultation in Finland‘s EIA – provision and practice
Seija Rantakallio, umhverfisráðuneyti Finnlands |
Samráð við almenning um skipulagsmál
Guðný Gústafsdóttir, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands Upptaka Glærur |
Panelumræður |
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar Bryndís Skúladóttir, VSÓ ráðgjöf Snorri Sigurðsson, sviðsstjóri náttúruverndar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands Svava Svanborg Steinarsdóttir, verkefnastjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur Pétur Halldórsson, stjórnarmaður í Landvernd |
16.30 Fundarlok |