Mál í kynningu


13.11.2020

10.000 tonna framleiðsla á laxi í Seyðisfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf., Sveitarfélaginu Múlaþingi

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími stendur frá 16. nóvember til 28. desember 2020.

Fiskeldi Austfjarða hf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. Frummatsskýrslan er aðgengileg hér og viðaukar eru aðgengilegir hér. Gögnin eru einnig aðgengileg á skrifstofu Sveitarfélagsins Múlaþings í Seyðisfirði, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 28. desember 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is