Mál í kynningu


14.9.2016

10.000 tonna framleiðsla á laxi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 30. september 2016

Fiskeldi Austfjarðahf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum 10.000 tonna framleiðslu á laxi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 30. september 2016 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.