Mál í kynningu


27.6.2023

20.000 tonna landeldi á laxi, bleikju eða regnbogasilungi í Ölfusi

Mat á umhverfisáhrifum – matsáætlun í kynningu

Umsagnarfrestur er til 1. ágúst 2023

Thor landeldi ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats 20.000 tonna landeldis á laxi, bleikju eða regnbogasilungi í Ölfusi. 

Matsáætlunin liggur frammi til kynningar hjá Skipulagsstofnun og á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss í Þorlákshöfn frá 27. júní til 1. ágúst 2023. Matsáætlun er aðgengileg á Skipulagsgátt

Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 1. ágúst 2023 til Skipulagsstofnunar í gegnum Skipulagsgátt, með tölvupósti á skipulag@skipulag.is eða með bréfpósti í Borgartún 7b, 105 Reykjavík.