Mál í kynningu


5.6.2019

4.000 tonna framleiðsluaukning á laxi í sjókvíum í Reyðarfirði og Eskifirði á vegum Laxa fiskeldis

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til athugasemda er til 25. júní 2019.

Laxar fiskeldi hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum 4.000 tonna framleiðsluaukningar á laxi á nýjum eldissvæðum í Reyðarfirði og Eskifirði.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. júní 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.