Mál í kynningu


4.7.2018

5.800 tonna framleiðsluaukning Arctic Sea Farm á laxi í Dýrafirði

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími stendur til 17. ágúst 2018

Arctic Sea Farm hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um 10.000 tonna laxeldi í Dýrafirði. Framleiðsluaukning um 5.800 tonn.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 5. júlí 2018 til 17. ágúst 2018 á eftirtöldum stöðum: Í Stjórnsýsluhúsinu Ísafirði og í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  

Frummatsskýrslan er aðgengileg hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 17. ágúst 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.