8.000 tonn laxeldi og/eða silungseldi í Ísafjarðardjúpi
Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu
Kynningartími stendur frá 8. apríl til 25. maí 2020.
Arctic Sea Farm hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.
Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Frummatsskýrslan er aðgengileg hér og á Safnahúsinu á Ísafirði, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. maí 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.