Mál í kynningu


16.10.2020

Allt að 2.500 tonna framleiðsla á laxi og laxaseiðum í eldisstöð Laxa eignarhaldsfélags ehf. við Laxabraut, Þorlákshöfn

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

  • Laxar Þorlákshöfn

Kynningartími stendur frá 15. október til 26. nóvember 2020.

Laxar fiskeldi ehf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.

Frummatsskýrsla og viðauki er aðgengilegt hér  og á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Skipulagsstofnun og Þjóðarbókhlöðunni.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. nóvember 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.