Mál í kynningu


29.9.2020

Allt að 200 MW vindorkugarður á Mosfellsheiði, Sveitarfélaginu Ölfusi og Grímsnes- og Grafningshreppi

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

  • Vindorkugarður á Mosfellsheiði

Frestur til athugasemda er til 15. október 2020.

Zephyr Iceland ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum allt að 200 MW vindorkugarðs á Mosfellsheiði.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 15. október 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.