Mál í kynningu


5.12.2022

Allt að 500 MW vindorkugarður í Klausturseli, Múlaþingi

Umhverfismat - Matsáætlun í kynningu

Umsagnarfrestur er til 7. janúar 2023

Zephyr Iceland ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats allt að 500 MW vindorkugarðs í Klausturseli í Múlaþingi.

Matsáætlunin er aðgengileg hér . Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. janúar 2023 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.