Allt að 6.800 tonna framleiðsla á laxi í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi
Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu
Kynningartími stendur frá 12. desember til 23. janúar 2017.
Háafell ehf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.
Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Frummatsskýrslan og viðaukar eru aðgengileg hér og á skrifstofum Ísafjarðarbæjar, Súðavíkurhrepps og Strandabyggðar, á Bæjar– og héraðsbókasafni Ísafjarðar, Bókasafni Súðavíkur, Héraðsbókasafni Strandasýslu, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. janúar 2017 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.