Mál í kynningu


15.1.2018

Aukin framleiðsla á laxi í Reyðarfirði um 10.000 tonn

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

  • LAX

Kynningartími stendur frá 15. janúar til 26. febrúar 2018

Laxar fiskeldi ehf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.

Frummatsskýrslan er aðgengileg hér og á bókasafninu á Eskifirði, bókasafninu á Reyðarfirði, bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar, Skipulagsstofnun og Þjóðarbókhlöðunni.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. febrúar 2018 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.

Laxar fiskeldi standa fyrir kynningarfundi á frummatsskýrslu þann 25. janúar kl. 20.00 í Grunnskóla Reyðarfjarðar og eru allir velkomnir.