Aukin framleiðsla í eldisstöð Stofnfisks í Vogavík
Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu
Kynningartími stendur frá 2. september til 15. október 2020.
Verkís fyrir hönd Stofnfisks hf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.
Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Frummatsskýrslan er aðgengileg hér og viðaukar eru aðgengilegir hér. Gögnin eru einnig aðgengileg á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Vogum, Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 15. október 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is