Mál í kynningu


5.11.2018

Aukin Vatnsvinnsla í Vatnsendakrikum í Heiðmörk, Reykjavík

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Frestur til að senda athugasemdir er til 21. desember 2018

Veitur ohf. hafa tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um aukna vatnsvinnslu í Vatnsendakrikum í Heiðmörk, Reykjavík.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 8. nóvember til 21. desember 2018 á eftirtöldum stöðum: Í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Hér má skoða frummatsskýrslu.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 21. desember 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.