Mál í kynningu


27.5.2020

Aukning urðunar í Fíflholti, Borgarbyggð

Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar

Sorpurðun Vesturlands hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um ofangreinda framkvæmd.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 28. maí til 10. júlí 2020 á eftirtöldum stöðum: Í Safnahúsinu í Borgarnesi, á Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan eraðgengileg hér

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 10. júlí 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.