Mál í kynningu


22.4.2020

Brennsluofn fyrir dýrahræ og dýraleifar á Strönd á Rangárvöllum, Rangárþingi ytra

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

  • Strönd brennsluofn

Frestur til athugasemda er til 8. maí 2020.

Sorpstöð Rangárvallasýslu hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum brennsluofns fyrir dýrahræ og dýraleifar á Strönd á Rangárvöllum.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 8. maí 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.