Mál í kynningu


22.5.2024

Coda Terminal, Hafnarfjarðarbæ

Mat á umhverfisáhrifum - umhverfismatsskýrsla í kynningu

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 5. júlí nk.

Carbfix hf. hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna Coda Terminal, Hafnarfjarðarbæ. 

Allir geta kynnt sé umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar. 

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér á Skipulagsgátt. 

Umsagnir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt eigi síðar en 5. júlí 2024. 

Kynningarfundur verður haldinn um umhverfismat Coda Terminal í samkomusal Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði, fimmtudaginn 30. maí kl. 17:30. Allir sem vilja kynna sér fyrirhugaða framkvæmd eru velkomnir.