Mál í kynningu


25.8.2017

Efnisnám kalkþörungasets í Ísafjarðardjúpi

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu                                             

  • djupid

Kynningartími stendur frá 25. ágúst til 9. október 2017.

Íslenska kalkþörungafélagið ehf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar. Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Frummatsskýrslan er aðgengileg hér, í Safnahúsinu á Ísafirði, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 9. október 2017 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.