Mál í kynningu


11.8.2022

Efnistaka á Mýrdalssandi

Mat á umhverfisáhrifum - umhverfismatsskýrsla í kynningu

Kynningartími er til 26. september 2022

EP Power Minerals hafa lagt fram umhverfismatsskýrslu um efnistöku á Mýrdalssandi.

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér  og á skrifstofu Mýrdalshrepps, hjá skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Ölfuss og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. september 2022 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.