Efnistaka í Höfðafjöru, Mýrdalshreppi
Mat á umhverfisáhrifum - Matsáætlun í kynningu
Frestur til umsagna er til og með 3. janúar 2023
Lava Concept Iceland ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna efnistöku í Höfðafjöru.
Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn um framkvæmdina.
Matsáætlunin er hér: Matsáætlun - Efnistaka-i-Hofdafjoru
Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 3. janúar 2023 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.