Mál í kynningu


22.11.2023

Efnistaka í Höfðafjöru, Mýrdalshreppi

Umhverfismat framkvæmda - Kynning umhverfismatsskýrslu

Umsagnarfrestur er til 5. janúar 2024

LavaConcept Iceland ehf. hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna umhverfismats efnistöku í Höfðafjöru, Mýrdalshreppi. 

Umhverfismatsskýrslan er til kynningar og er aðgengileg á www.skipulagsgatt.is.

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar í gegnum Skipulagsgátt eigi síðar en 5. janúar 2024.