Mál í kynningu


12.1.2023

Efnistaka úr Litlabakkanámu

Mat á umhverfisáhrifum - umhverfismatsskýrsla í kynningu

Kynningartími umhverfismatsskýrslu er til 24. febrúar 2023 

Landeigandi Litlabakka hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu um efnistöku úr Litlabakkanámu í Múlaþingi.

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér og á skrifstofu Múlaþings og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 24. febrúar 2023 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is