Mál í kynningu


8.7.2021

Eldisstöð laxfiska á landi í Vestmannaeyjum

Mat á umhverfisáhrifum - Tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til athugasemda er til 26. júlí 2021.

Sjálfbært fiskeldi í Eyjum ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum eldisstöðvar laxfiska á landi í Vestmannaeyjum.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. júlí 2021 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is