Mál í kynningu


22.8.2022

Eldisstöð laxfiska á landi í Vestmannaeyjum

Mat á umhverfisáhrifum - umhverfismatsskýrsla í kynningu

Kynningartími umhverfismatsskýrslu er til 4. október 2022

Icelandic Land Farmed Salmon hafa lagt fram umhverfismatsskýrslu um eldisstöð laxfiska á landi í Vestmannaeyjum.

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan og viðaukaheftið er aðgengileg hér og á skrifstofu Vestmannaeyjabæjar og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 4. október 2022 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is

Vakin er athygli á að niðurstöður umhverfismatsins verða kynntar af hálfu framkvæmdaraðila í Vestmannaeyjum á sameiginlegum kynningarfundi og fyrirhugaðar skipulagsbreytingar. Kynningarfundurinn verður auglýstur síðar.